Vetrarheims Pepsi Blue

Fæddur 11. október 2004
Dáinn 28. janúar 2010.

Pepsi Blue var kallaður Pjakkkur. Hann var mjög fallegur á litinn,
blár og hann var lifandi eftirmynd móður sinnar. Hann var með
alvarlega nýrnarbilun og var svæfður 28 janúar 2010.
Pjakkur var mjög rólegur, ljúfur og kelinn. Hann var hógvær og lét
ekki mikið yfir sér. Hann var samt gríðarlega mikill veiðiköttur. Hann
veiddi stundum marga fugla sama daginn og kom með fyrir fætur húsbónda
síns. Þá var hann afar flinkur klifurköttur. Nokkurra mánaða var hann
kominn upp í hæstu tré á Ásvallagötunni og dinglaði jafnvel á smáum
greinum í 7-8 metra hæð sér til skemmtunar en eiganda sínum til
mikillar skelfingar sem var næstum búinn að hringa á slökkviliðið.
Hann kom sér yfirleitt fyrir á háum hillum á heimili sínu þar sem hann
dottaði og hafði það gott.

Albróðir hans Atlas saknar hans sárt og einnig feðgarnir þrír að
Ásvallagötu 10, Reykjavík. Við munum aldrei gleyma þér elsku vinur.


Eldibrands Blátoppur

Fæddur:17.11.2007
Dáinn14.12.2009

Eigandi: Birna Vigdís Björnsdóttir
Blámi minn var ást við fyrstu sín, var ekki lengi að stökkva til þegar ég frétti hjá Margréti að hann væri falur og sá ég aldrei eftir því. Blámi var meira en lítið æðislegur og stríðnari kött hef ég aldrei kynnst. Hann stríddi ekki bara læðunni á heimilinu, henni Esmeröldu, heldur hundum og mannfólkinu líka. Ófá skiptin beið hann í leini til að hrekkja hunda og ketti, var hann líka fyrstur á svæðið er matardallurinn var fylltur. Hann var líka fyrstur alla morgna að fagna því að dóttir mín væri vöknuð og kúrði alltaf í fanginu á henni meðan hún borðaði morgunmat, síðan höfðu þau það notarlegt yfir barnaefninu eða meðan skóladótið var tekið til. Eftir að Esmeralda átti sitt fyrsta got þá var það ljóst að sambúð þeirra frændsystkina myndi ekki ganga svo hann fór í smá fóstur í Hfj. Í lok sumars byrjun haust, en hann var komin aftur í Garðabæinn og var bara nokkrum götum frá okkur þegar hann varð fyrir bíl. Það er búið að vera hræðileg sorg á heimilinu eftir að við sóttum hann og kvöddum, og vildi ég óska að við hefðum náð að knúsa hann bara einu sinni enn.Við mæðgur kveðjum þann allra besta kisa í heimi og söknum hans sárt, ég veit líka að það eru fleirri sem sakna hans og væri hver heppinn að hafa kynnst svo skemmtilegum kisa sem Blámi var. Með tár í augunum kveðjum við hann í hinsta sinn, elskum þig.

Blíðfinnur Funi
Fæddur: 21. nóvember, 2002
Látinn: 27. febrúar 2009
Eigandi: Erla Stefánsdóttir
Blíðfinnur flutti 12 vikna til Sigrúnar þar sem átti gott líf. Ég fékk að passa Blíðfinn minn tvisvar eftir að hann flutti að heiman, mér til mikillar ánægju, síðast vorið 2004. Í fyrra kom svo upp ofnæmi á heimilinu og þá flytur Blíðfinnur til mín fyrir fullt og allt. Allt gekk vel í fyrstu, en síðan fórum við að taka eftir að Blíðfinni leið ekki vel og dýralæknar sögðu að hann hefði alvarlega þvagfærasýkingu. Ekki tókst að vinna bug á sýkingunni sem versnaði hægt og rólega þó við ættum svo sannarlega góðar stundir inn á milli og í febrúar s.l. neyddist ég til að taka þá ákvörðun að gera það sem væri best fyrir strákinn minn og leyfa honum að kveðja.
Hans er sárt saknað bæði á okkar og hans fyrrverandi heimili. Hvíl i friði blíði góði strákurinn okkar.


Vetrarheims Kalína Kaja

Fædd: 06. nóvember 2008
Látin: 31. júlí 2009
Eigandi Anna María Beck

Kalína Kaja lést í bílslysi

Blettur

Fæddur: 27. apríl 2009
Látinn: 18. maí 2009
Eigandi Birna Björnsdóttir

Fæddur með klofin góm og barðist hetjulega í 3.vikur ofboðslega duglegur
strákur.

Fékk að drekka gegnum slöngu ofan í maga og var að braggast gífurlega vel
þangað til hann fékk lungnabólgu að verða 3.vikna. Eftir 2 daga í
súrefnikassa á spítalanum var hann svæfður.

Mikill söknuður á heimilinu eftir að hann fór, alger hetja þessi litli kisi.


Ástarkv. fjölskyldan í mýrinni

S*Aliosha's Forni Eldórsson

Fæddur: 29. desember 2008
Látinn: 14. mars 2009
Eigandi Hrund Gautadóttir og Aliosha Romero

Forni lést eftir snögg veikindi.  Hans er sárt saknað.



Skaga Tristan

Fæddur: 10.mars 2005
Eigandi Sólveig Runólfsdóttir

Hann Tristan týndist af heimili sínu Seljabraut í Breiðholti í byrjun ársins 2008 og hefur ekki skilað sér heim síðan þá. Þótt frést hafi til hvítar kattar í Bökkunum en ekki fundist þótt víða væri leitað.. :( Hans er sárt saknað og vonandi er hann bara komin á gott heimili frekar en látinn. Elsku Tristan minn, þú varst besti kisi sem ég hef nokkurn tíman átt. Svo blíðan og ljúfan kisa er erfitt að finna. Við söknum þín. :* Sólveig og fjölskylda.

Vongóða Vilma á Hlíðarenda

Fædd: 6. október 2007

Lést af slysförum í  október 2008
Eigendur: Reynir og Rósa
Aliosha´s Elírós Brimarsdóttir 

Fædd 11. mars 2008
Varð fyrir bíl í október 2008.
Eigandi: Kristbjörg Kolbeinsdóttir, Akureyri  

Eldibrands Njóli

Fæddur: 17. nóvember 2007
Lést úr veikindum haustið 2008
Eigandi: Ásta Maack og fjölskylda
Bjartar Óberon
Fæddur 14. ágúst. 2007
Lést 11. september 2008 í bílslysi
Eigandi: Hólmfríður Egilsson   
Elsku hjartans ljúflingurinn og prakkarinn okkar er farinn frá okkur, við söknum hans meira en orð fá lýst.

Minning þín verður í hjörtum okkar alla tíð Brattasti strákurinn okkar, takk fyrir
að hafa fengið að hafa þig hjá okkur.
 
Hólmfríður, Kristján, Sigurgeir og Sóldís Diljá.
Ljósálfa Birta

Fædd 03. mars 2002
Lést 2006
Björgvinjar Seven 

Fæddur 14. nóv. 2003
Lést 12. ágúst 2008 af slysförum

Eigandi: Áslaug Sturlaugsdóttir  


Söknuðurinn mun dofna en ekki minningarnar um allt það góða sem þú veittir okkur.
Ljósálfa Veron 

Fæddur 29. mars 2000
Lést 14. ágúst 2008 af slysförum

Eigandi: Gróa Halldórsdóttir 

 

Didriksen Tara 

Fædd 20. júní 2005
Lést 1. ágúst 2008 í bílslysi
Eigandi: Ragnheiður

Elsku Tara mín 
Það var svo yndislegt að fá að kynnast þér og eiga með þér allar þessar góðu stundir sem við áttum saman, við höfðum það svo notalegt saman og þú varst svo góð við mig, þú gafst mer svo mikið . Ég vildi óska að stundirnar hefðu verið miklu fleiri, en ég ég þakka fyrir tímann sem við áttum saman. Ég sakna þín óskaplega sárt og hugsa mikið og fallega til þín , minning þín lifir með mér. Tara mín var jörðuð í fallegum garði eftir þetta hörmulega slys, þín er sárt saknað elsku vina. 
Þín Ragnheiður

 

Bjartar Mímas 

Fæddur 20. maí 2008 
Lést af slysförum 17.júlí 2008 
Eigandi: Sigrún Margrét Pétursdóttir

Elsku Mímas litli með ljónshjartað, þín er sárt saknað elsku músin okkar. 

Sigrún og Tolli

Aliosha´s Brimar Búason

Fæddur 7. apríl 2007
Dáinn 13. júlí 2008
Eigandi: Svanhvít Erla Gunnarsdóttir og fjölskylda
Sandgerði
Brimar dó vegna eitrunnar.
Didriksen Mjallhvít

Fædd 22. mars, 2004
Dáinn 17. mars 2008.
Eigandi: Katrín Didriksen
Geisla Sól

Fædd 10. mars 2008
Dáinn 10. mars 2008.
Eigendur: Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson
Sól dó vegna innvortis blæðinga sem orsökuðust af erfiðri fæðingu.

 

Úlfhams Reykur

Fæddur: 29. maí 2006
Dáinn 3. desember 2007.
Eigendur: Charlotte Pétursson og fjölskylda
Reykur dó í bílslysi.

 

Eldibrands Diðrik

Fæddur: 5. ágúst 2006
Dáinn 2007.
Eigendur: Elísa og fjölskylda

 

Skaga Milla

Fædd: 14.mars 2005
Milla hvarf að heiman í fyrra og hefur ekki sést síðan.
Eigandi: Emelía Elín Fransdóttir
Skaga Katla

Fædd: 14.mars 2005
Katla hvarf að heiman í fyrra og hefur ekki sést síðan.

Eigandi: Nanna Rögnvaldsdóttir
Frostrósar Flekkur

Fæddur 8. júlí 2007
Dáinn nóvember 2007

Eigandi: Anita Hólm Sigurðardóttir
CH Norðheima Nikita

Fædd: 27.desember 2004
Dáin 10. september 2007

Eigandi: Dröfn Kristmundsdóttir

 

Didriksen Grímur

Lést af slysförum
Fæddur 27. júlí 2007
Dáinn 2007

Eigandi: Katrín Didriksen

 

Ástríka Ásdís á Hlíðarenda

Fædd 6. október 2007
Dáin 8. október 2007
Eigandi: Ásdís H. Gunnarsdóttir

Elsku litla kisustelpa, það var sárt að missa þig en við munum alltaf muna eftir þér og vitum að þú ert á betri stað núna.
Didriksen Tindur

Lést vegna lifrar og nýrnabilunar

Fæddur 5. mars 2005
Dáinn 7. september 2007
Eigendur: Matthildur og Bjarmi Dagur

Elsku Zorró okkar, þín er sárt saknað en við vitum að þér líður vel þar sem þú ert núna og við munum aldrei gleyma þér.
Krummi af Söguslóðum

Greindist með ólæknandi sjúkdóm og var svæfður
Fæddur: 7. mars 2006
Dáinn: 1. júní 2007
Eigandi: Jón Hörðdal
Gullfoss Tristan Týr
Fæddur 21. feb. 2007
Dáinn 4. júlí 2007
Eigandi: Sandra Clausen


Hann Tristan Týr eða Simbi eins og hann var kallaður hér heima lést af slysförum þann 4 júlí síðastliðinn. Var hann þá aðeins 4 mánaða að aldri þessi elska. Uppáhald Simba var það að þrífa húsbændur sína og kela við börnin þó svo þau yrðu stundum of harðhent við hann vegna óvitaskaps. Uppáhalds svefnstaðurinn var baðkerið og að slást við leikfélaga sinn hann Lennon var toppurinn á tilverunni. Var Simbi jarðaður daginn eftir andlátið í fallegum garði við trega og tár. Við kveðjum yndislegan högna, sem var jafn gæfur og hann var fallegur.

Sandra, Freyr og fjölskylda.


Gullfoss Tíbrá

Fædd: 21. febrúar 2007
Dó í bílslysi í maí 2007
Eigandi: Dórathea
Vetrarheims Telma
Fædd: 21. maí 2000
Eigandi: Jakob Þór Guðbjartsson
Vetrarheims Java
Fædd 13. ágúst 1999
Eigandi: Nanna Lovisa Zophoníasdóttir
Didriksen Gríma

Fædd 22. mars 2004
Eigendur: Hrund Gautadóttir, Aliosha Romero og Svanhildur Hermannsdóttir

Gríma var svæfð vegna nýrnasjúkdóms 3. apríl. 2007. Hún var mjög félagslynd og yndislegri kött er ekki hægt að hugsa sér, hennar er mjög sárt saknað.



Fiskerjenta´s Seljen

Fæddur 10. maí 2004
Eigendur: Jo Ann Önnudóttir
og Brynjar Gunnarsson

Svæfður vegna ólæknandi sjúkdóms 24. jan. 2007

 

Didriksen Emil

Fæddur 20.júní 2005
Eigandi: Charlotte Pétursson
Dáinn sumarið 2006 Emil lést af slysförum
Rauðhóla Mærþöll
Fædd: 9. nóvember 2006
Dáin: 11. nóvember 2006

Elsku litla Mærþöll fæddist með klofinn góm og var svæfð.
Björgvinjar Jóvin
Fædd: 14. nóvember 2003
Eigendur: Eva Björk og Kristján Hlynur

Jóvin lést í bílslysi.
PR Rauðhóla Purrkur (Krummi)
Fæddur: 6.desember, 2003
Dáinn 13. júlí 2006
Eigendur: Vigfús Eyjólfsson og fjölskylda

Purrkur lést úr hjartasjúkdómi.

Vetrarheims prins
Fæddur 9. janúar 2006
Svæfður 12. janúar 2006

Hvíldu í friði, elsku prins.

Skaga Sókrates
Fæddur 1. júní 2004
Dáinn í mars 2005
Eigendur: Brynja Birgisdóttir
Rauðhóla Hlökk

Fædd 23. júní 2005
Dáin 11. des. 2005
Eigendur: Heimir Karlsson og fjölskylda


Hlökk lést af slysförum, hennar er sárt saknað.
CH Björgvinjar Dafnis

fædd 22. okt 1998
Varð bráðkvödd í svefni 30. okt 2005.

Vertu kært kvödd, elsku Dafnis.
Frostrósar Snælda

Fædd 2. des. 2004
Dáin: okt. 2005
Eigandi: Jo Ann Önnudóttir
Frostrósar Mingus

Fæddur 2. des. 2004
Dáin: 2005
Eigandi Elsa Fanney Grétarsdóttir
Ljósálfa Mjallhvít

Fædd: 3.mars.2002
Dáin: 20.júlí 2005
Eigandi: Jóhanna Gunnarsdóttir
Frostrósar Milla Ýr

Fædd 2.desember 2004
Svæfð vegna ólæknandi sjúkdóms 10 júní 2005.
Eigandi Anna Þóra Árnadóttir
Björgvinjar Charmør ("Fróði")
Fæddur: 22.10.1998
Dáinn. 4.maí.2005
Eigandi: Jónas
Fróði yfirgaf okkur þann 4. maí 2005. Hann átti við nýrnavandamál að stríða. Hans er sárt saknað af eiganda sínum og besta vini. Fróði var ekki allra, en við sem kynntumst honum minnumst hans með hlýju og söknuði.
Hvíl í friði Fróði minn.
Vetrarheims Delphi

Fædd: 1.maí 2002
Svæfð eftir bílslys í apríl 2005
Eigandi: Snæfríður
Stanley's Nanna (Perla)
Fædd: 25.11.2001
Dáin: Desember 2004
Eigendur: Lúðvík og Halldóra
Ljósálfa Ronja
Fædd 6.mars 2001
Svæfð desember 2004
Eigandi: Inga Björk Guðmundsdóttir
Gullfoss - Þór
fæddur 18. janúar 2004
dáinn 5. mars 2005.


Elsku stóri bangsinn okkar varð fyrir bíl og lést samstundis. Því miður tók það okkur fjölskylduna 10 daga að komast að því, þannig að við sem söknum þín, elsku Þór, svo mikið, gátum ekki kvatt þig, eins og okkur hefði langað til. Þú varst ótrúlega góður og kelinn, besti köttur sem við höfum átt og kynnst. Vaktir mig alltaf á morgnana með kossi og fórst svo rúm úr rúmi og kysstir alla hina til að örugglega allir færi nú á fætur. Við hveðjum þig með mikum söknuði en það er svo margt sem þú gafst okkur, sem mun ylja okkur um langan tíma. Þór, við elskum þig.
Fjölskyldan Búðarfjöru 3.

Gullfoss Aþena
Fædd: 18. janúar, 2004
Dáin: Febrúar, 2005
Eigandi: Berit G. Kristjánsdóttir

Laugardaginn 26.febrúar lenti Aþena í bílslysi.  Við skoðun hjá dýralækni kom í ljós að áverkarnir voru svo slæmir að það þurfti að svæfa hana.  Það var erfið og sár ákvörðun.  Hennar er sárt saknað á heimili okkar og af allri fjölskyldunni. 

Hún kom til okkar í apríl 2004 sem afmælisgjöf.  Eiginlegur eigandi hennar, Andrea Lovísa fékk hana að gjöf á 4ra ára afmælinu sínu.  Hún gat endalaust hnoðast, kúrað og leikið við Aþenu.  Þær fóru oft í eltingarleik og feluleik.  Hún var kelnasta, klárasta, fallegasta og skemmtilegasta kisa sem við höfum kynnst.  Jafnvel þeir sem ekki eru miklir kisu-vinir bráðnuðu við að sjá hana og fá hana uppí fang sér. 
En núna er hún orðin að kisu-engli hjá guði og guð passar hana.  Við munum aldrei gleyma Aþenu okkar.
Vetrarheims Blámi

Fæddur: 13. ágúst, 1998
Dáinn: Febrúar, 2005
Eigandi: Halldóra Ingibergsdóttir

Lést af nýrnasjúkdómi sem uppgötvaðist mjög seint.
Bláma er sárt saknað en alltaf verður hann hérna hjá okkur og hann var lang-besti köttur í heimi.
(N) IC Garbriela av Oseberg

Fædd: 16. september, 1994
Dáin: 25. september 2004
Eigandi: Bjorgvinjar-cattery
Lést af lungnakrabbameini
Fyrsti skógarkötturinn minn og ástæðan fyrir því að við fórum að elska norska skógarketti.
Sessí mín við söknum þín sárt, en huggum okkur við að nú eru þið Seven saman á ný.
Við sem eftir erum yljum okkur við minningarnar og þær eru margar og góðar!
Vetrarheims Snæfríður
Fædd: 13. ágúst, 1998
Dáin: Ágúst, 2004
Lést af slysförum.

Eigendur: Magnus og Ester
Snæfríður var heyrnarlaus en bætti sér upp þann
veikleika með því að vera óvenju gáfaður
köttur. Hún var elskuð og dáð af eigendum sínum
sem sakna hennar sárt.
Lífar Jökull

Fæddur: 19.nóvember, 2003

Lífar Jökull lést af ólæknandi sjúkdómi í lok júlí 2004
Tumi

fæddur: 21. maí, 2002
Eigandi: Ida Christiansen

Tumi lést í bílslysi þann 16.júní 2004
Ljósálfa Mjöll

Fædd: 03.03.2002

Eigandi: Gróa HalldórsdóttirVar bráðkvödd í svefni.

Lést í janúar 2004.
Í minningu kærra systkina Eldibrands Óma Rökkva og Rauðhettu Rós
Í byrjun nóvember fékk ég þær sorgarfréttir að litla Rauðhetta mín hefði veikst af ólæknandi sjúkdómi og dáið. Nú í byrjun janúar veiktist Ómi Rökkvi af sama sjúkdóm, er talið og lést hann 14. janúar s.l.
Rauðhetta Rós og Ómur Rökkvi voru fædd þann 24. maí 2003 ­ Minning þeirra lifir í huga okkar og hjarta.

Margrét B. Garðarsdóttir og fósturforeldrar
Stanleys Hugi
Fæddur: 25. nóvember, 2001
Dáinn: 6. janúar, 2004
Eigendur: Lárus og Guðrún
Var svæfður með slæma áverka eftir bílslys. Sofðu rótt elsku besti sómakisinn okkar, þín er
sárt saknað og við gleymum þér aldrei.


Stanleys Magni

Fæddur: 25. nóvember, 2001
Eigendur: Lárus og Guðrún
Magni hvarf að heiman þann 10 maí 2003 og
hefur ekki sést síðan. Vonum að þú sért á góðum stað núna elsku Magni
okkar þó við gefum aldrei alveg upp vonina.
Ljósálfa Felix
Fæddur: 3. mars, 2002
Dáinn: 2003
Eigandi: Hrönn Guðjónsdóttir
(N) IC. Seven Up av Oseberg
Fæddur: 5. júlí, 1995
Dáinn: 25. ágúst 2003
Eigandi: Bjorgvinjar-cattery
Lést af hjartasjúkdóm.
Þú munt ætíð lifa í minningum okkar, elsku karlinn minn.

 

Vetrarheims Pascal
Fæddur: 13.08.1998
Eigandi: Valtýr Björn Valtýsson
Týndist frá heimili sínu fyrir rúmu ári og hefur aldrei komið aftur.
Ljósálfa Valiant von Trier
Fæddur: 29.03. 2000
Eigandi: Brynhildur S.Thorsteinsson

Okkar ástkæri Valiant hvarf af heimili sínu við Hringbraut í Reykjavík vorið 2002. Ekkert hefur spurst til hans síðan. Við söknum hans enn, hann var engu líkur. Vonandi býr hann hjá einhverju góðu fólki sem kann að meta þennan karakter.
Ljósálfa Venus
29.03. 2000 - 2.05. 2003
Eigandi: Unnur Eir Magnadóttir
Mína
23.03.03-18.04.2003
Eigandi: Halldóra Ingibergsdóttir
Björgvinjar Magdalena
26.11.99-05.01.2003
Eigandi: Áslaug Líf Stanleysdóttir
Lena dó í bílslysi.
Óríon Sesar
Fæddur: 21. maí, 2002
Dáinn. 8. nóvember, 2002
Dó í bílslysi.
Hans er sárt saknað af eigendum og ræktanda..
Eigandi: Gunnhildur Davíðsdóttir
Rauðhóla Ýma Þöll
Fædd: 23.03.2002
Dó í bílslysi haustið 2002.
Eigandi: Hrönn Guðjónsdóttir
Björgvinjar Opus
Fæddur: 22. okt, 1998
Dáinn. 30. júlí, 2002
Eigandi: Hisako Imazumi
Dó úr gulu eftir mjög stutta sjúkralegu.
Vetrarheims Hera
Fædd: 03.05.2000
Dó um sumarið 2002.
Eigandi: Kristín Garðarsdóttir
GIC. Vintergæk Felis Jubatus
Fædd: 09.09.1994
Dáin: 11.07.2002
Eigandi: Vetrarheims - kattarækt
Innflutt frá "Felis Jubatus" í Danmörku,
kom til landsins í desember 1996.
Vintergæk var ákveðin, en jafnframt ljúf dama.
Ættmóðir allra hvítra skógarkatta á Íslandi.
Elsku Vintergæk, hvíldu í friði, við söknum þín.
Vetrarheims Máni
01.05.2002-19.07.2002

Stanleys Sunna Valkyrja
25.11.2001 - 06.2002
Eigandi: Kristbjörg Björnsdóttir

Ljósálfa Tara
06.03.2001-2002
Eigandi: Kristbjörg Björnsdóttir

Vetrarheims Mega Vera
03.05.2000-09.2001
Eigandi: Sigurður H. Einarsson
Mega Vera lést af slysförum í september 2001.

Björgvinjar Gimsteinn
26.11.99-14.06.01
Eigandi: Brynja Björgvinsdóttir
Gimmi lést af áverkum sem hann hlaut í bílslysi

Vetrarheims Lotus
1998-2000
Eigandi: Björgvin Þórisson
Lotus hvarf að heiman í fyrra og hefur ekki sést síðan. Sennilega hefur hún orðið fyrir bíl.

Vetrarheims Hercules
03.05.2000-01.08.2000
Eigandi: Anna Rögnvaldsdóttir

Hope af Fly
1998 - 1999
Eigandi : Stefanía Bragadóttir
Hope lést eftir stutta sjúkralegu árið 1999.

Vetrarheims Blundur ("Keli")
1998 - 1999
Eigendur : Jóhann & Jóhanna
Keli var dásamlegur hvítur fress, einn í goti og algjört eftirlæti. Hann var blíður og mannelskur, nema þegar kom að dýralæknum. Hann átti gott líf hjá Jóhanni, Jóhönnu og fjölskyldu. Keli lést af slysförum í desember 1999.

Vetrarheims Vera
1999 - 2000
Eigendur : Sigurður & fjölskylda
Vera lést eftir stutta sjúkralegu snemma árs 2000.

simple hit counter © Skógarkattaklúbbur Íslands skogarkettir@skogarkettir.is